Laugardagur, 30. júní 2007
Ættargrill í sveitinni
Já ég kom norður í gær.. aaa hvað er ljúft að komast í sveitina Svo í dag var ættargrill hjá Svalbarðsættinni.. sem sagt ættinni hennar múttu... við komum uppeftir (var haldið í bústað hjá bróður mömmu) og það var bara 20stiga hiti aaaa.. það var spjallað og spjallað og legið í sólbaði og svo var nátla grillað og fengið sér öl.... svo reyndar kom Skúli frændi með tópas flösku og var að bjóða liðinu mjög gott.. reyndar fékk ég smá sjokk þegar amma gamla sturtaði staupinu í sig og bað um annað hehehehehe.... en þetta var sem sagt mjög gaman.. gott veður og góður stemmari.
Ég reyndar vaknaði í morgun og fékk áfall!! SHIT!! ok fyrir mánuði síðan þá vann Heiðar fyrir mig einn laugardag og í staðinn átti ég að taka einn laugardag fyrir hann þar sem hann ætlaði í brúðkaup.. ég sem sagt vaknaði og leit á símann minn og sá 4 missed calls.. bæði frá Heiðari og Hadda aðst versló.. ég bara wow hvað er í gangi og hringdi í hadda... Haddi bara ert þú ekki e-ð að klikka Begga mín.. ég bara ha?? og svo kom.. já ætlaðir þú ekki að vinna fyrir Heiðar í dag?? Ég fékk vægt taugaáfall... var nátla búin að steingleyma því!! Fuck hvað mér leið illa!!! Bauðs meir að segja að bruna í bæinn!! en þess þurfti ekki... en mér sem sagt líður ennþá illa yfir þessu agalegt að klikka á svona!
Núna væri ég alveg til í að kíkja aðeins á Síróp (barinn hérna) en því miður þá eru foreldrar hennar möggu ekki heima... þannig að engin pössun.. þannig að planið fyrir kveldið er víst bara að slappa af hérna heima.. fá sér smá hvítt og semí snemma að sofa... vakna svo eldhress á morgun.. kíkja í selasetrið (selasafnið sem var að opna hérna) og keyra svo heim seinni partinn...
Um bloggið
My so called life!
Tenglar
Frændfólk
Myndirnar mínar
Fólk
Verslunarfagfólk
Minning
Litlu sætu börnin
-
Litli guðsonur minn
Sætasta barn ever.. -
Litli hans Barkar
Löggimanns sonur -
Sandra Fanney
Sæta litla frænka mín
Vinir og kunningjar
Blogg hjá vinum og kunningjum..
- Gamli bekkurinn minn
- Ragna
-
Lind
Lindin -
Glaumgosarnir
vitleyzingar -
Heidar
Heiðar á útopnu -
Magga
Súpermamman magga
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslurnar
- Loftslagssvindlið strand
- Tæki 15 ár að fá evru og tapa fiskimiðunum og orkunni í leiðinni?
- Vafasamir ráðherrar sem brjóta lög fá að sitja
- Skóflustunga ráðherra og flugvöllurinn
- Aðgerðablaðamennska Morgunblaðsins
- Stelirðu miklu og standir þú hátt.
- Pæling II
- ALLT SANN-KRISTIÐ FÓLK Í USA HLÝTUR AÐ FAGNA SVONA YFIRLÝSINGUM : "AÐEINS VERÐI TVÖ KYN VIÐURKENND Í KERFUNUM":
- Svikarar fólksins
- Passar hún?
Athugasemdir
Hva týndist þú bara á leiðinni heim úr sveitinni???? Eða er svona brjálað að gera í vinnunni þinni???
Magga (IP-tala skráð) 7.7.2007 kl. 10:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.