Sunnudagur, 19. ágúst 2007
18.ágúst- Menningarnótt
Gærdagurinn var hinn besti dagur bara.
Var að vinna til kl 14:50 (átti að vera að vinna til 14:30) Brunaði heim og fór í sturtu og hafði mig til á met tíma. Svo var brunað uppí Grafarvog, en við vorum orðin sein í sírnina! Þegar ég átti svona 3mín eftir á áfangastað hringdi litla systa og bara.. er langt í ykkur? Það er neflilega verið að bíða eftir ykkur!!! Svo þegar við komum í Grafarvogs kirkju þá sátu bara allir þar voða rólegir. Presturinn bara jæja Rebekka mín þú ertu nú loks komin.. mig langaði að láta mig hverfa hehe.. en það voru allir voða rólegir á því og ekkert stress í gangi. Þórey systa vildi bara hafa öll systkinin sín hjá sér og þess vegna biðu þau.. en þetta var nú bara ca 10mín...
Litla prinsessan fékk nafni Þórkatla Júliana. Mamma hennar Þóreyja heitir Þórkatla og svo langaamma hennar Þóreyjar hét víst Þórkatla Júliana. Þaðan kom nafnið... bara ágætis nafn.
Svo var farið í veislu og etið kökur og með því... svo þurfti Kjartan að fara og hjálpa vini sínum að grilla í e-i veislu þannig að ég skutlaði honum þangað og fór svo heim.
Ég ákvað þá að skella mér niður í bæ aðeins og tékka á menningunni. Ég nennti ekki að fara á bílnum tekur alltaf heila eilífð að finna stæði og sonna.. þannig að ég ákvað að gerast hugrökk og taka strætó!! Hehe það var alveg ágætis grunnskóla fílingur í því zko... Ég rölti svo niður Laugarvegin í góðu yfirlæti og skoðaði helling af búðum og uppákomum.
Svo hringdi pabbi í mig og var e-ð að spyrja útí tónleikana á Miklatúni og ég ákvað bara að draga kallinn með mér á tónleikana því ég heyrði á honum að hann nennti ekki einn en langaði að fara.. fínt þá þurfti ég ekki að vera ein á tónleikunum. Þannig að við fórum saman á tónleikana og svo fórum við og horfðum á flugeldana saman.. alltaf gott að eyða stund með pabba gamla.
En ég komst að því að það er bara ágætt að fara svona rölt niður laugarvegin ein.. hélt mér myndi leiðast það.. en það var bara mjög fínt! Vera bara einn með sjálfum sér innan um allt þetta fólk.
En svo eftir tónleikana þá fór ég heim og ætlaði að fá mér eitt hvítvínsglas fyrir svefninn.. ég held að ég hafi ekki náð að fá mér hálft glas áður en ég sofnaði í sófanum!
Núna er marr bara í sýngarsalnum að tjilla.... ekki mikið að gera í búðini.. þorri borgarbúa er örugglega ennþá sofandi.. eða að rumska.. sumir að deyja úr þynnku.. aðrir ennþá fullir.. og enn aðrir ennþá að skemmta sér.
En ég á eftir að vera hérna í 5.5klst í viðbót og þá fer marr heim og leggur sig!!
But well back to work.....
Um bloggið
My so called life!
Tenglar
Frændfólk
Myndirnar mínar
Fólk
Verslunarfagfólk
Minning
Litlu sætu börnin
-
Litli guðsonur minn
Sætasta barn ever.. -
Litli hans Barkar
Löggimanns sonur -
Sandra Fanney
Sæta litla frænka mín
Vinir og kunningjar
Blogg hjá vinum og kunningjum..
- Gamli bekkurinn minn
- Ragna
-
Lind
Lindin -
Glaumgosarnir
vitleyzingar -
Heidar
Heiðar á útopnu -
Magga
Súpermamman magga
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslurnar
- Samkeppni við Kína skapar vanda fyrir fatageirann í Bangladess
- Pæling I
- Þóra þegir, Þórður Snær kvartar undan skipstjóranum
- Kínverska leyndin er ekki gagnleg
- Trump sjálfum sér líkur
- Eyjólfur fékk ráðherrastól
- Bæn dagsins...
- Hvernig ætti að vera hægt að bjarga bandarísku þjóðinni undan gamalli helstefnumenningu? Þetta er tízkubóla og annað ekki
- Var Íslandi hótað?
- Sjálfstraust Pæling III-IV
Athugasemdir
Hvað fæ ég að éta á laug?? :)
Jóhanna (IP-tala skráð) 23.8.2007 kl. 18:00
Þú færð súrsaða hrútspunga í forrétt, svið í aðalrétt og svo skyr í eftirrétt
CrazyB, 24.8.2007 kl. 10:19
mmm... my favorite!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! líka rosa gott að hafa súrsæta sósu með sviðunum!
Jóhanna (IP-tala skráð) 24.8.2007 kl. 17:11
Já og grillaðir hrútspungar með BBQ sósu mmmm.... bara best í heimi verður svo ekki volg mysa með til að skola góðgætinu niður?? hún má ekki vera áfeng fyrir mig en spurning hvort að Jóhanna þurfi ekki smá vodka út í hana hehe.... sé ykkur túmorró!!!
Ásdís (IP-tala skráð) 25.8.2007 kl. 00:30
neinei ekkert áfengi fyrir mig!! ætla sko ekki að drekka áfengi fyrr en.... hmm... kannski næstu helgi. ágætt að taka svona eina helgi frí!!! nema maður fái sér kannski e-ð í næstu viku uppí bústað! :) ohh... já held það. er ekki skylda að drekka allavega smá áfengi í bústaðaferðum??
annars er ég kannski bara hætt að drekka.. verð bara edrú alltaf í vísó og svona. sándar það ekki vel?? ahahahha.... DJÓK
Johanna (IP-tala skráð) 25.8.2007 kl. 09:53
Takk fyrir matinn í gær! Þetta var ROSA gott kláraðiru hvítvínið? ég frétti að djammbannið hafi farið út um þúfur hahaha....
Ásdís (IP-tala skráð) 26.8.2007 kl. 18:10
hehe nei það er hellingur eftir ennþá af hvítvíninu.. já ég skrapp út í alveg heila klst.. kíkti á ball á players... meikaði sem sagt ekki meira en klst!!! jiii hvað marr er orðin gömul!!!
CrazyB, 27.8.2007 kl. 18:38
já takk fyrir matinn! rosa jammí!! :)
Jóhanna (IP-tala skráð) 27.8.2007 kl. 21:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.