Wazzup

Jæja já.. ekki mikið búið að gerast undanfarið hjá mér.

Bara vinna vinna og aftur vinna....

Var í fríi í gær og í dag.. djö er það ljúft... fór í nudd í gær því bakið var að drepa mig.. Hélt ég ætlaði í rólegt og afslappandi nudd.. eeeennn neeeeiiiii sagði gellunni þegar ég pantaði að ég væri að drepast í bakinu og hún skráði mig í:

Shiatsu: Japanst listanudd, þrýstipunktanudd og teyjur, losar sérstaklega m háls, axlir, bak og mjaðmir. Mjög nákvæm og djúp meðferð sem skilar árangri. Æskilegt að vera í léttum fötum

Þetta var klikkað vont marr þegar á þessu stóð.. en gerði vægast sagt kraftarverk!! Bakið á mér er hundrað sinnum betra!!

Svo átti ég pantaðann tíma í klippingu á Skjöldur 101 (hárgreiðslustofan hans Skjaldar Eyfjörð) var búin að ákveða að gera einhverja geðveika breytingu.. og viti menn þessi maður er snillingur.. ég er sem sagt með svart hár með rauðum strípum hér og þar.. bara klikkað flott!! svo klippti hann líka flottann topp á mig og sonna... ég er bara ánægð með þetta ;)

En svo í kveld þá ætla ég og pabbi gamli að skella okkur í leikhús.. ætlum í Borgarleikhúsið á Lík í óskilum.. hlakka til að gera það..

Svo er það bara vinna á morgun og já ætli ég verði barasta ekki að vinna næstu 3 helgar.. talningarnar eru að byrja!!! En jæja er að hugsa um að fara að ákveða í hverju ég ætla að vera í kveld og solleiðis....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

er ekki málið að taka mynd og setja hér inn svo við getum séð hárið??

Jóhanna (IP-tala skráð) 9.9.2007 kl. 20:22

2 Smámynd: CrazyB

Er ekki málið bara að kíkja á mig Jóhanna mín og sjá þetta með eigin augum ;)

CrazyB, 10.9.2007 kl. 18:17

3 identicon

hey mig langar að sjá mynd, ég get ekki bara kíkt í kaffi

magga (IP-tala skráð) 10.9.2007 kl. 19:55

4 identicon

Mig dreymdi í nótt að þú hefðir hringt í mig og spurt mig hvort ég gæti ekki mætt í vinnuna um helgina. Ég varð mjög reiður og sagði: "Ekki hringja í mig" og skellti svo á þig.

Þú veist að ég er í Nottingham. Hringdu í mig rétt fyrir jól, ég skal mæta þá, en bara á kvöldin þegar það er ekkert að gera:)

HeiðarS (IP-tala skráð) 12.9.2007 kl. 19:52

5 identicon

vissirðu að sunneva heitir hlín að seinna nafni en ekki hlíf

gurrý (IP-tala skráð) 12.9.2007 kl. 20:00

6 identicon

ég skal alveg taka eitthvað af vinnunni hjá þer ég er að rotn herna heima.... ég er bara í afleisingum og ég kann ekkert að vera í fríi.... eru að vinna um helgina eða á að mæta í réttir??svo er ball með dalton á barnum

diza (IP-tala skráð) 14.9.2007 kl. 11:10

7 Smámynd: CrazyB

Hjördís: Já blessuð vertu það vantar fullt um helgar hjá mér.. getu fengið vinnu hérna um hverja einustu helgi og e-ð á virkum dögum líka  Já því miður er ég að vinna  mig langaði svo í réttir!!!! Gurrí.. já ég fattaði þetta og er búin að breyta því.. takk fyrir ábendinguna.

CrazyB, 14.9.2007 kl. 11:45

8 identicon

Hvernig væri að koma með nýtt blogg?? Blogghringurinn tekur of stuttan tíma þegar fólk er svona óduglegt  

Ertu búin að heyra hverjir verða á Players um helgina?  þú ættir nú að dusta rykið að tjúttskónum og skella þér á ball haha... Ég er búin að henda mínum tjúttskóm því að ég held að þeir séu löngu dottnir úr tísku og munu nú ekki vera mikið notaðir á næstunni þar sem "líf" mitt saman stendur nú bara af misskemmtilegum bókum þessa dagana!

Sjáumst um jólin

Ásdís (IP-tala skráð) 19.9.2007 kl. 21:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

My so called life!

Höfundur

CrazyB
CrazyB
Cogito ergo sum!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Fólk

Verslunarfagfólk

Minning

Litlu sætu börnin

Vinir og kunningjar

Blogg hjá vinum og kunningjum..

Nýjustu myndir

  • 3
  • 5
  • 6
  • 4
  • ...dsc00332

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 525

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband